IVF meðferð
Hormónameðferð konunnar
Í IVF meðferðum eru í meginatriðum notaðar tvær aðferðir: Agonistameðferðir (löng hormónameðferð) og antagonistameðferðir (stutt hormónameðferð).
Aukaverkanir
Lyfin sem notuð eru við meðferðirnar geta valdið lítils háttar aukaverkunum.
Algengustu aukaverkanir bælingarlyfja (Suprecur) eru: Höfuðverkur, þreyta, skapbreytingar og þyngdarbreytingar.
Algengustu aukaverkanir örvunarlyfjanna eru: Marblettir, verkir, roði, bólga og kláði á stungustað.
Langtímaverkanir
Eftir því sem best er vitað er engin ástæða til að halda að IVF meðferðir auki hættu á sjúkdómum í framtíðinni svo sem krabbameinum.
Frjóvgun
Frjóvgun er gerð með sæði frá maka eða gjafasæði.
Uppsetning fósturvísa
Fósturvísarnir eru varðveittir á rannsóknarstofunni við tryggar aðstæður í allt að 5 daga fyrir uppsetningu. Fósturvísar eru færðir inn í legið á degi, 2, 3, eða 5.
Frysting
Í vissum tilfellum er mögulegt að frysta umfram fósturvísa. Einungis er hægt að frysta og þíða fósturvísa sem uppfylla vissar kröfur um gæði.
Öryggi
Við viðhöfum strangar öryggisreglur á klíníkinni til þess að koma í veg fyrir rugling á eggjum, sáðfrumum og frjóvguðum eggjum milli sjúklinga.
Sálrænir þættir
Fyrir marga getur meðferðin haft í för með sér töluvert andlegt álag. Við erum meðvituð um að hlúa þarf að þessum þætti samhliða meðferðinni.
Áhrif lífsstíls
Það er margt í lífsstílnum sem getur haft áhrif. Til dæmis offita, undirþyngd og reykingar. Stefnt er að því að bjóða upp á hjálp við offitu á deildinni.
Sæðisrannsóknir
Við gerum sæðisrannsóknir. Í vissum tilfellum getur verið nauðsynlegt að vísa mönnum einnig til þvagfæraskurðlæknis.
Samþykki
Fyrir sérhverja meðferð verður að skrifa undir upplýst samþykki.
Hjúskaparstaða
Í lögum um tæknifrjóvganir kemur fram að pör sem fara í meðferð verða að vera annað hvort gift eða skráð í sambúð. Hægt er að skrá sig í sambúð hér.